Home Fréttir Í fréttum 03.09.2021 Vetrarbraut – 1. áfangi. Arnarnesvegur – Hnoðraholt- Gatnagerð og lagnir –...

03.09.2021 Vetrarbraut – 1. áfangi. Arnarnesvegur – Hnoðraholt- Gatnagerð og lagnir – Eftirlit

207
0
Mynd: Garðabær

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið:  Vetrarbraut -1. áfangi. Arnarnesvegur -Hnoðraholt. Gatnagerð og lagnir -Eftirlit

<>

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið:

Vetrarbraut – 1. áfangi. Arnarnesvegur – Hnoðraholt – Gatnagerð og lagnir – Eftirlit

Eftirlitsverkið felst í því að hafa eftirlit fyrir Garðabæ með útboðsverkinu: Vetrarbraut – 1. áfangi. Arnarnesvegur – Hnoðraholt, gatnagerð og lagnir.

Í útboðsverkinu erum að ræða nýbyggingu á fyrsta áfanga Vetrarbrautar frá Arnarnesvegi að nýju hringtorgi við Hnoðraholt. Um er að ræða gerð gatna, gangstétta, stíga, holræsa og vatnslagna.

Gerðar eru kröfur um að eftirlitsaðili hafi góða þekkingu og reynslu af sambærilegum verkum.

Eftirlitsaðili skal annast allar nauðsynlegar mælingar og mæla inn allar lagnir veitufyrirtækja.

Eftirlitsverkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu auk verksamninga og annarra fylgigagna samnings um ofangreint útboðsverk.

Útboðsverkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. mars 2022. Eftirlitsaðili skal standa að fullu við sínar skuldbindingar eigi síðar en 15. maí 2022.

Útboðsgögn má nálgast hér á vef Garðabæjar, frá og með föstudeginum 20. ágúst.

Tilboð verða opnuð með rafrænum hætti á hjá Eflu hf, Lynghálsi 4, föstudaginn 3. september 2021 klukkan 11.00.