Home Fréttir Í fréttum 10.08.2021 Upphéraðsvegur (931) um Ásklif

10.08.2021 Upphéraðsvegur (931) um Ásklif

361
0
Upphéraðsvegur. Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í verkið: Upphéraðsvegur (931) um Ásklif.

<>

Verkið felst í endurbyggingu, Upphéraðsvegar á um 3,7 km kafla, 931-02 Ás-Hof.

Helstu magntölur eru:

Bergskeringar 14.000 m3

Fyllingar 27.900 m3

Fláafleygar 17.800 m3

Ræsalögn 40 m

Styrktarlag 17.400 m3

Burðarlag 3.980 m3

Klæðing 23.500 m2

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 31. ágúst 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 26. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. ágúst 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.