Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2021-2024.
Verkið felst í snjóruðningi og hálkueyðingu á bílastæðum stofnana og í húsagötum í þrjá vetur, þ.e. veturna 2021-2022, 2022‑2023 og 2023-2024. Um er að ræða bílastæði á öllum helstu stofnanalóðum í Garðabæ og húsagötur.
Helstu magntölur eru:
- Húsagötur 300 km
- Leikskólar 11.130 m2
- Grunnskólar 11.310 m2
- Íþróttamiðstöðvar 16.830 m2
- Kirkjur 4.750 m2
- Aðrar stofnanir 11.160 m2
Útboðsgögn er hægt að nálgast hér fyrir neðan á vef Garðabæjar.
Tilboðum skal skilað á netfangið utbod@mannvit.is fyrir kl. 11:30 þann 17. ágúst 2021.
Opnunarfundur verður ekki opinn bjóðendum. Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.