Home Fréttir Í fréttum 20.07.2021 Vatnsnesvegur (711) um Vesturhópshólaá

20.07.2021 Vatnsnesvegur (711) um Vesturhópshólaá

134
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í byggingu 17 m langrar brúar yfir Vesturhópshólaá á Vatnsnesvegi, nýbyggingu vegar á um 1,0 km kafla og endurbyggingu á um 1,2 km löngum kafla milli Vesturhópshóla og Þorfinnsstaða. Einnig er inni í verkinu bygging heimreiða og tenginga.

<>

Áætlaðar magntölur:

Verkhluti 1 – Vegagerð:

– Fyllingarefni úr námum 15.300 m3

– Fláafleygar úr skeringum 4.400 m3

– Ræsalögn 121 m

– Styrktarlag 15.400 m3

– Burðarlag 3.500 m3

– Malarklæðing 250 m3

– Tvöföld klæðing 13.450 m2

– Vegrið 280 m

– Frágangur fláa 7.800 m2

– Frágangur á námum 17.500 m2

Verkhluti 2 – Brú á Vesturhópshólaá:

– Gröftur 70 m3

– Steyptir staurar, skurður 42 stk

– Mótafletir 905,1 m2

– Steypustyrktarjárn 39,6 tonn

– Spennt járnalögn 4,5 tonn

– Steypa 323,7 m3

– Vegrið á brú 38 m

 

Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. september 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 5. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. júlí 202.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.