Home Fréttir Í fréttum Vill nýjar höfuðstöðvar fyrir WOW á Kársnesi

Vill nýjar höfuðstöðvar fyrir WOW á Kársnesi

125
0
Skúli Mogensen

Flugfélagið WOW air hefur óskað eftir viðræðum við Kópavogsbæ um lóð undir byggingu níu þúsund fermetra atvinnu- og skrifstofuhúsnæðis við sjávarsíðuna á Kársnesi.

<>

Fyrsti áfangi hússins á að vera tilbúinn á árinu 2017 eða 2018. Áætluð bílastæðaþörf er 200 stæði miðað við fullbyggða lóð. Þetta kemur fram í bréfi Skúla Mogensen, forstjóra fyrirtækisins, til Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra Kópavogs. Bréfið var til umræðu á bæjarráðsfundi í gær. Höfuðstöðvar WOW eru núna í Katrínartúni og Bríetartúni í Reykjavík og eru samtals tvö þúsund fermetrar. Þar starfa nú 200 manns á sumrin.

Ekki náðist í Skúla Mogensen í gær en í bréfi hans segir að gert sé ráð fyrir að í höfuðstöðvum WOW air verði opin veitingasala með ókeypis nettengingu til afnota fyrir almenning. Opið rými gæti nýst fyrir listsýningar og aðra menningarviðburði.

Þá segir að WOW air muni halda samkeppni fjögurra eða fimm arkitektastofa um hönnunina. Hugað verði að tengingum við göngu-, hlaupa- og hjólreiðastíga og fyrirhugaða Fossvogsbrú. Lóðin eigi að hluta að nýtast almenningi og geti orðið áfangastaður fyrir þá sem fara um svæðið með einhverri afþreyingu.

„Félagið sér fyrir sér að við eða undir húsinu verði aðstaða fyrir smábáta og kajaka og að á lóðinni verði komið fyrir listaverkum úr safni eiganda félagsins,“ segir í bréfi Skúla sem er þekktur listaverkasafnari.

Ármann bæjarstjóri segir að Kársnesið sé í þróun. Meginbreytingin muni felast í því að í kringum höfnina sé að aukast byggð á kostnað atvinnuhúsnæðis.

„Og það hefur nú verið talað um að höfnin verði yndishöfn þar sem verði byggðarkjarni í kring og tækifærin sem höfnin gefur til útivistar og að njóta þess að vera í nágrenni við sjóinn verði nýtt,“ segir Ármann. En jafnframt sé atvinnuhúsnæði á Kársnesi sem ekki verði hróflað við. „Þetta býður upp á blandaða byggð og getur verið skemmtilegt að þróa tengingu á milli íbúðabyggðar og atvinnusvæðis.“

Heimild: Vísir.is