Home Fréttir Í fréttum 13.07.2021 Bíldudalshöfn – Steypt þekja, lagnir og raforkuvirki 2021

13.07.2021 Bíldudalshöfn – Steypt þekja, lagnir og raforkuvirki 2021

72
0
Bíldudalshöfn. Mynd: BB.is

Hafnarsjóður Vesturbyggðar óskar eftir tilboðum í verkið „Bíldudalshöfn – Steypt þekja, lagnir og raforkuvirki 2021“.

<>

Helstu verkþættir eru:

· Steypa upp vatns- rafbúnaðarhús.

· Leggja ídráttarrör.

· Leggja vatns- og frárennslislagnir.

· Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu.

· Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2445 m2.

· Raforkuvirki.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. júní 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 28. júní 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. júlí 202.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.