Home Fréttir Í fréttum Einkafjármögnun og veggjald fylgja nýrri Hornafjarðarbrú

Einkafjármögnun og veggjald fylgja nýrri Hornafjarðarbrú

87
0
Tölvuteikning af nýrri leið yfir Hornafjörð. Verkinu fylgja fjórar nýjar brýr og nítján kílómetrar af nýjum vegum. VEGAGERÐIN

Vegagerðin hefur boðið út smíði nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót ásamt fjármögnun verksins. Þetta er fyrsta útboðið frá því sérstök lög voru samþykkt í fyrra sem heimila ríkinu að heimta vegtolla og semja við einkaaðila um fjármögnun samgönguframkvæmda.

<>

Gamla brúin yfir Hornafjarðarfljót verður sextug í ár, byggð árið 1961, og er fyrir löngu orðin barn síns tíma. Fimmtán ár eru raunar liðin frá því umhverfismat hófst formlega vegna smíði nýrrar brúar en verkið jafnan strandað á fjármögnun. En núna er Vegagerðin loksins tilbúin að hefjast handa; á grundvelli nýlegra laga um samvinnuverkefni.

„Þetta eru þáttaskil. Þetta er í fyrsta skipti sem við gerum þetta,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri í viðtali í fréttum Stöðvar 2.

Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri.
Mynd: ARNAR HALLDÓRSSON

„Við höfum náttúrlega lagt okkur fram um það að læra inn á þessa aðferðafræði, ekki síst frá okkar nágrannalöndum. Við höfum kynnt okkur vel hvernig Norðmennirnir eru að haga þessum málum og Danir.“

Hugmyndin er að ríkið greiði hluta verksins með beinu framlagi en innheimti jafnframt veggjöld í tuttugu til þrjátíu ár fyrir restinni. Bergþóra segir verkið standa mjög vel undir því að vera samvinnuverkefni.

„Ríkið er að leggja þarna til tvo og hálfan milljarð. Og við bjóðum þetta verk út fullhannað en gerum ráð fyrir að samningsaðilinn taki áhættuna af verkinu, ef það má orða það þannig, og fjármögnun.“

Nýja brúin yfir Hornafjarðarfljót verður 250 metra löng.
VEGAGERÐIN

Með nýju brúarstæði styttist hringvegurinn um tólf kílómetra. Og það á ekki að reisa eina brú heldur fjórar nýjar en um leið fækkar einbreiðum brúm á hringveginum um þrjár.

„Þetta er mikil samgöngubót. Þetta er stórt verk. Þetta eru nítján kílómetrar af þjóðvegi og fjórar brýr, sem verða tvíbreiðar. Það eru hliðarvegir. Gríðarleg samgöngubót,“ segir Bergþóra.

Frestur til að skila inn umsókn um þátttöku í innkaupaferlinu og staðfestingu á hæfisskilyrðum er til 6. júlí og er stefnt að því að samningum verði lokið fyrir áramót. En hvenær má svo búast við því að verkið verði tilbúið og að menn geti klippt á borða?

„Ja, við reiknum með að þetta sé þriggja ára verk. En það er vissulega eitt af því sem verður til samninga við viðkomandi aðila, hvað menn treysta sér í því,“ svarar vegamálastjóri.

Heimild: Visir.is