Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Bjarg Íbúðafélag gerir verksamning við ÍAV um byggingu 64 íbúða við Hraunbæ...

Bjarg Íbúðafélag gerir verksamning við ÍAV um byggingu 64 íbúða við Hraunbæ 133

318
0
Mynd: ÍAV.is

Bjarg Íbúðafélag hses. og ÍAV undirrituðu þann 4. júní 2021 s.l verksamning sem felur í sér að ÍAV byggi og afhendi alls 64 almennar leiguíbúðir við Hraunbæ 133.

<>

Samtals eru 59 íbúðir í tveimur 3-5 hæða blokkum með 4 stigagöngum, auk þess raðhús á tveimur hæðum með 5 íbúðum.

Samningsform er fast heildarverð.

Íbúðirnar verða afhentar í fjórum áföngum frá 15. september 2022 fram til 25. nóvember 2022:

Miðað er við að jarðvegsframkvæmdir hefjist í lok júní 2021, aðstöðusköpun að mestu lokið.

Heimild: IAV.is