Home Fréttir Í fréttum Mikill meirihluti kaus með 3-4 hæða húsum á Oddeyri

Mikill meirihluti kaus með 3-4 hæða húsum á Oddeyri

63
0
Mynd: Akureyri.is - RÚV
Flestir greiddu atkvæði með gildandi aðalskipulagi í ráðgefandi íbúakosningu um aðalskipulag Oddeyrar sem lauk á miðnætti. 67% þeirra sem tóku þátt kusu með gildandi skipulagi sem gerir ráð fyrir hús á reitnum geti verið 3-4 hæðir.

26 prósent tóku þátt

Í tilkynningu frá Akureyrarbæ kemur fram að alls tóku 3.878 íbúar sveitarfélagsins þátt eða um 26% þeirra sem uppfylltu skilyrði til þátttöku. Mikill meirihluti kaus með gildndi skipulagi, þar á eftir kom auglýst tillaga þar sem hús geta verið 6-8 hæðir. Því næst málamiðlunartillaga með 5-6 hæða húsum að hámarki.

<>
3.878 íbúar sveitarfélagsins tóku þátt. Mynd: Akureyri.is – RÚV

Niðurstaðan ráðgefandi

Kosningin var opin í þjónustugátti bæjarins dagana 27.-31. maí og gátu allir íbúar, 18 ára og eldri, með lögheimili í sveitarfélaginu tekið þátt. „Niðurstaðan er bæjarstjórn ráðgefandi, enda var markmiðið fyrst og fremst að kanna vilja íbúa gagnvart uppbyggingu á svæðinu. Þeim fjölmörgu íbúum sem tóku þátt er þakkað kærlega fyrir þeirra framlag,“ segir í tilkynningu.

Heimild: Ruv.is