Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Bæjarstjóri tók fyrstu skóflustunguna að nýju Hlíðarhverfi í Grindavík

Bæjarstjóri tók fyrstu skóflustunguna að nýju Hlíðarhverfi í Grindavík

158
0
Mynd: Grindavíkurbær

Í vikunni var fyrsta skóflustungan tekin að nýju Hlíðarhverfi og verksamningur undirritaður milli Grindavíkurbæjar og verktakans Jóns & Margeirs.

<>

Það var enginn annar en bæjarstjórinn sjálfur, Fannar Jónasson, sem sá um að stýra gröfunni og taka fyrstu skóflustunguna.

Viðstaddir skóflustunguna auk bæjarstjóra og verktakans Jóns & Margeirs, voru bæjarfulltrúarnir Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs, Sigurður Óli Þórleifsson, forseti bæjarstjórnar, Páll Valur Björnsson, Hallfríður Hólmgrímsdóttir og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Atli Geir Júlíusson.

Jón Gunnar Margeirsson undirritar verksamning fyrir hönd Jóns & Margeirs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri fyrir hönd Grindavíkurbæjar. Mynd: Grindavíkurbær

Vinnuvélar eru nú byrjaðar á að grafa upp svæðið en fyrsti áfangi er gatnagerð og eru verklok áætluð 15. nóvember 2021.

Grindavíkurbær kynnti sl. haust tillögu að nýju deiliskipulagi norðan við Hópsbraut en í Hlíðarhverfi er gert ráð fyrir að fjöldi í

búðaeininga verði allt að 384 og að þar verði byggður upp nýr leikskóli ásamt því að lóð er skilgreind fyrir hverfisverslun eða aðra þjónustu. Skilgreindar eru öruggar umferðarleiðir fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur.

Meðfylgjandi frétt er tölvugert myndband sem gefur betri mynd af því hvernig fullbyggt hverfi mun líta út.

Opnun tilboða í gatnagerð í nýju Hlíðarhverfi var þann 10.maí 2021.  Lægstbjóðandi var Jón og Margeir ehf en tilboð þeirra var 67% af kostnaðaráætlun.

Heimild: Grindavik.is