Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Norðursvæði árið 2021.
Helstu magntölur:
- Yfirlögn: 68.254 m2
- Viðgerðir: 930 m2
- Fræsing: 21.393 m2
Verki skal að fullu lokið 15. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 3. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. maí 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.