Forseti Íslands og mennta- og menningarmálaráðherra lögðu í sameiningu hornstein að Húsi íslenskunnar við Suðurgötu í dag.
Húsið mun hýsa fjölbreytta starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar og íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þar verða meðal annars sérhönnuð rými fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á íslenskum skinnhandritum.
Áætlað er að húsið verði afhent eigendum sumarið 2022 en það þarf að standa autt í eitt ár til að rétt rakastig verði í húsinu. Því er flutningur í húsið áætlaður eftir rúm tvö ár.
Hátíðarbragur var við athöfnina í dag. Þar sátu meðal annars þrír forsetar íslenska lýðveldisins saman.
Bergsveinn Birgisson, rithöfundur, flutti ljóð sitt „Við hornstein að Húsi íslenskunnar“ sem er óður til íslensku tungunnar og hússins sem mun geyma arf tungumálsins.
Heimild: Visir.is