Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir á Austursvæði 2021, blettanir með klæðingu
Helstu magntölur á ári eru:
Blettun á Austur með klæðingu: 80.000 m2
Flutningur steinefna: 880 m3
Flutningur bindiefna: 88 m3
Verki skal að fullu lokið 1. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 19. apríl 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. maí 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.