Home Fréttir Í fréttum 07.05.2021 Reykjanesbær. Endurbætur innandyra á starfsmannaálmu Njarðvíkurskóla

07.05.2021 Reykjanesbær. Endurbætur innandyra á starfsmannaálmu Njarðvíkurskóla

165
0
Mynd: Njarðvíkurskóli

Verkið felst í endurbótum innandyra á starfsmannaálmu Njarðvíkurskóla í Reykjanesbæ, samtals 450 m2.

<>

Verkið skiptist í tvo megin hluta þ.e. endurnýjun skrifstofa, flutning og standsetning á móttöku eldhúss ásamt því að bæta við útihurð, steypa ramp að þeirri hurð og byggja útveggi, gólf og þak úr timbri fyrir geymslu í útigarði.

Rífa skal innréttingar, loftklæðningar, hluta raflagna, hluta loftræstikerfis, vatnslagnir að hluta, gólfefni, veggklæðningar, létta milliveggi, saga í steypta veggi og vinna svo að fullnaðarfrágangi innandyra auk áðurnefndra breytinga utandyra.

Að verki loknu skal húsið vera tilbúið til notkunar.

ÚTBOÐSYFIRLIT

  • Afhending útboðsgagna                                  15.04.2021 kl 14:00
  • Kynningarfundur                                            21.04.2021
  • Fyrirspurnatíma lýkur                                     30.04.2021
  • Svarfrestur rennur út                                      04.05.2021
  • Skil á tilboðum                                               07.05.2021 kl 14:00
  • Opnunartími tilboða                                        07.05.2021 kl: 14:02
  • Upphaf framkvæmdatíma                                05.05 2021
  • Lok framkvæmdatíma                                     20.08.2021
  • Kröfur til bjóðenda:  Sérstakar kröfur gerðar um hæfni og reynslu bjóðanda,

 

Þar sem útboðið er rafrænt verður ekki um formlegan opnunarfund að ræða. Bjóðendum verið send fundargerð opnunar þar sem frá kemur hverjir buðu í verkið, tilboðsupphæð og kostnaðaráætlun.

Útboðsgögn afhent frá: 15.04.2021 kl. 14:00

Opnun tilboða verður þann: 07.05.2021 kl. 14:01

Þeir sem áhuga hafa á að gera tilboð í verkið geta með því að senda ósk þar um í  tölvupósti á tölvupóstfangið innkaupastjori@reykjanesbaer.is fengið útboðsgögn send