Verkið felur í sér endurbætur á flugvélaakbrautum Kilo 3, Kilo 4 og beygjum inn á Charlie 3 á Keflavíkurflugvelli, sjá staðsetningu á teikningum.
Verktaki skal leggja nýtt yfirlagsmalbik á flugvélaakbrautina og fræsa upp hluta núverandi malbiks á miðri akbrautinni og endurnýja.
Þá þarf að breikka flugvélaakbrautina í þremur beygjum, sem innifelur gröft, lagningu fyllingar, burðarlags og malbiks.
Einnig þarf verktaki að koma fyrir rafmagnsbrunnum, meðfram akbrautum Kilo 3 og Kilo 4. Leggja ljósastrengi fyrir miðlínuljós úr brunnum og út í miðja akbrautina.
Einnig að koma fyrir ljósabotnum (shallow base) í miðlínu akbrautar. Þá skal verktaki færa kantljós, ljósabotna og tengingar, við beygjur og við akbraut Charlie 3.
Verðfyrirspurnargögn afhent frá: 15.04.2021 kl. 17:00
Opnun tilboða verður þann: 10.05.2021 kl. 11:00