Home Fréttir Í fréttum 06.05.2021 Félagsheimið Sindrabær á Höfn

06.05.2021 Félagsheimið Sindrabær á Höfn

204
0

Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „SINDRABÆR – BREYTINGAR 2021/2022“ eins og því er lýst í útboðsgögnum.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda.

<>

 Innifalið í tilboð skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og er það skilgreint í útboðsgögnum.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið er meðal annars fólgið í lokafrágangi við endurinnréttingar í forsal og aðalsal á jarðhæð í Sindrabæ, breytingar á svölum og tónmenntastofu á 2. hæð/svölum í sal. Breyta skal sviði og rýmum í kjallara undir sviði, lagfæra gólf, veggi og loft og mála öll rými. Ganga skal frá lyftu milli sviðs og kjallara. Á jarðhæð við bakinngang (næst sviði) skal lagfæra veggi, Endurinnrétta skal rými á 2. hæð, við suðausturhlið í Sindrabæ
Frágangur innanhúss nær í aðalatriðum til eftirtalinna verkþátta:

  • Rif og steypusögun
  • Steypa sviðsgólfs og gólfhluta í kjallara
  • Steypt ofan á stiga og ásteypulag á efri hæð
  • Smíði léttra innveggja og veggþykkinga, sandspörtlun og málun
  • Loftaklæðningar og frágangur jaðra, sandspörtlun og málun
  • Parketlögn á aðalsal, grindun og plötuklæðning á sviði
  • Flísalögn gólfs í forsal, teppalögn stiga og gólfs á svölum/tónmenntastofu
  • Gólfdúkalögn í rýmum tónlistaskólans á efri hæð og baksviðs.
  • Endurnýjun á rafmagni
  • Uppsetning á loftræstikerfi

Verktími

Verkkaupi óskar samráðs við verktaka um verkáætlun og framvindu, en megin ósk verkkaupa um röð framkvæmda er að verkið skuli vinna í tveimur lotum. Fyrri lotu frá maílokum til 30. október 2021, og þeirri seinni frá 16. maí 2022 og skal vera lokið eigi síðar en 15. desember 2022.

Útboðsgögn

  • Útboðsgögn bera nafnið: „SINDRABÆR -BREYTINGAR 2021/2022“og sundurliðast eftirfarandi:
  • Útboðslýsing gerð af Glámu/Kími Arkitektum.
  • Teikningar (sjá teikningaskrá) og verklýsingar arkitekta, gerðar af Glámu/Kími Arkitektum.
  • Teikningar (sjá teikningaskrá) og verklýsingar vegna burðarvirkis og lagna gerðar af Verkfræðiþjónustunni ehf.
  • Teikningar (sjá teikningaskrá) og verklýsingar vegna raflagna gerðar af Tækniþjónustunni ehf.
  • Tilboðsskrá og tilboðseyðublað

Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á bjorni@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „SINDRABÆR – BREYTINGAR 2021/2022“ . Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „SINDRABÆR – BREYTINGAR 2021/2022

Skil og opnun tilboðs.

Tilboði skal skilað í lokuðu umslagi merktu bjóðanda og með eftirfarandi utanáskrift „SINDRABÆR – BREYTINGAR 2021/2022“ eigi síðar en fimmtudaginn 6. maí 2021 kl. 14:00.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Sveitarfélaginu Hornafirði og verða þau opnuð samtímis í fundarsal sveitarfélagsins á 3. hæð í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir. Geti bjóðandi ekki komið útfylltum útboðsgögnum á opnunarstað til opnunar, er heimilt að senda undirritað tilboð ásamt fylgigögnum með tölvupósti á netfangið bjorni@hornafjordur.is og skal það hafa borist áður en skilafrestur er runninn út en bjóðandi skal þá jafnframt hafa póstlagt með ábyrgðarpóstsendingu, a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram, gögn sem fylgja eiga tilboðinu og skal staðfesting þess efnis fylgja með tölvupóstinum.

Berist tölvupóstur ekki í tæka tíð fyrir opnun tilboða er það á ábyrgð bjóðanda og telst tilboðið þá ógilt.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.

Nánari upplýsingar veitir: Björn Imsland, bjorni@hornafjordur.is sími 470-8014 eða 894-8413