Home Fréttir Í fréttum 27.04.2021 Garðabær. Þjónusta iðnaðarmanna – Málningarvinna

27.04.2021 Garðabær. Þjónusta iðnaðarmanna – Málningarvinna

94
0

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna – Málningarvinna

<>

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Þjónusta iðnaðarmanna – Málningarvinna

Verkið felst í að þjónusta reglulega málningarvinnu á vegum sveitarfélagsins. Um er að ræða rammasamning við allt að þrjá aðila til að leysa tilfallandi viðhalds- og þjónustuverkefni fyrir mannvirki bæjarfélagsins

Helstu magntölur eru:

  • Tímavinna allt að 1.600 klst. á samningstímanum
  • Mismunandi málaðir fletir, 5.500 m2 á samningstímanum

Útboðsgögn verða einungis aðgengileg á rafrænu formi á vefsíðu Garðabæjar.

Helstu dagsetningar:

  • Afhending tilboða fyrir kl 13:30                              27. apríl 2021.
  • Upphaf samnings                                                     1.ágúst 2021.

Samningstími er tvö ár með mögulegum framlengingum tvisvar sinnum til tveggja ára í senn.

Tilboð skal afhenda á skrifstofu Strendings ehf, verkfræðiþjónustu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði, fyrir kl. 13:30 þriðjudaginn 27. apríl 2021.Tilboð verða opnuð á rafrænum opnunarfundi sama dag kl 14:00

Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar.