Útboð NORÐURBAKKI – ÚTIVISTARSVÆÐI
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið Norðurbakki – útivistarsvæði.
Verkið felst í endurgerð á yfirborði bryggju og bryggjukanti við Norðurbakka í Hafnarfirði.
Um er að ræða útivistarsvæði og gönguleið sem tengist miðbænum.
Helstu magntölur eru:
Grúsarfylling 600 m³
Ljósastólpar 4 stk
Ljósapollar 22 stk
Timburbryggja 216 m²
Malbik 1.960 m²
Hellulögn 325 m²
Gróðurbeð 180 m²
Verklok eru 1.nóvember 2021
Reiknað er með að verkið geti hafist í kringum 15.júlí. Nánari lýsing er að finna í útboðsgögnum.
Útboðsgögn eru afhend frá og með þriðjudeginum 13.april
Útboðsgögn eru afhend rafrænt til þeirra sem hyggjast bjóða í verkið. Senda þarf á netfangið halldor@hafnarfjordur.is og gefa þarf upp nafn og síma umsækjanda ásamt nafni á fyrirtæki og kennitölu. Í Kjölfarið fær viðkomandi sent útboðsgögnin í tölvupósti.
Skila þarf inn tilboðsgögnum í afgreiðslu Þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar að Norðurhellu 2 fyrir opnun sem er fimmtudaginn 29. Apríl 2021 kl 11:30.
Tilboð verða opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem viðstaddir kunna að vera.