Hafnar eru framkvæmdir við nýtt hringtorg á Flatahrauni.
Vegna þeirra framkvæmda þarf að loka tímabundið núverandi tengingu að íþróttasvæði FH og mun umferðin á meðan fara um eldri innkeyrslu vestar á Flatahrauni. Aðalgönguleiðin að svæðinu mun einnig verða um eldri innkeyrslu.
Framkvæmdir munu standa yfir fram í lok júní og mun verða truflun á umferð á því tímabili.
Heimild: Hafnarfjordur.is