Home Fréttir Í fréttum Borgin af­léttir ekki kvöð um litla gras­flöt og berja­runna þrátt fyrir mót­mæli

Borgin af­léttir ekki kvöð um litla gras­flöt og berja­runna þrátt fyrir mót­mæli

154
0
Guðmundur Heiðar Helgason telur ekki hentugt að skylda íbúa til að vera með fjögurra fermetra grasflöt innan skjólveggja. Mynd: VÍSIR/VILHELM

Reykjavíkurborg ætlar ekki að aflétta kvöð í skipulagi Vogabyggðar um græn svæði innan einkagarða íbúða.

<>

Málið varðar sérafnotareiti íbúa í hinu nýja hverfi en Vísir fjallaði í janúar um óánægju Guðmundar Heiðars Helgasonar sem fékk ekki leyfi til að stækka pallinn fyrir aftan íbúð sína.

Komst fjölskyldan að því eftir fasteignakaupin að samkvæmt skilmálum borgarinnar þyrfti að vera gras yfir helmingi hins tíu fermetra sérafnotareits og minnst einn berjarunni.

Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar að ákvæði um gróðurþekju í einkagörðum í Vogabyggð séu ekki talin íþyngjandi og eru svæðin sögð hluti af heildarmynd hverfisins.

Guðmundur segir niðurstöðu borgarinnar vera vonbrigði og það beri á óánægju hjá fleiri íbúum í hverfinu.

„Ég er ósáttur við þessa forræðishyggju borgaryfirvalda vegna lítilla séreignareita íbúa. Ég er ósammála þeirri niðurstöðu að þetta sé ekki íþyngjandi.

Það er ekki praktísk lausn að hafa fjögurra fermetra grasflöt sem mun líklegast ekki fá neitt sólarljós. Ég hef einnig efasemdir um að þetta hafi mikið að segja um heildarútlit hverfisins, þar sem gróðurþekjan verður ekki sýnileg öðrum en mér.“

Sagt í mótsögn við markmið byggðarinnar

ÞG íbúðir ehf., söluaðili íbúða á svæðinu óskaði eftir því að borgin myndi fella niður áðurnefnt ákvæði um 50% gróðurþekju innan einkagarða og berjarunna. Borgin hafnar beiðninni á grundvelli þess að slíkt „hefði verið í mótsögn við markmið byggðarinnar.“

Þá segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar að græn svæði einkagarða í borginni séu mikilvægur þáttur af grænni ásýnd hennar og þau gefi henni „skemmtilegt yfirbragð.“

„Í umsögn skipulagsfulltrúa segir að eitt af markmiðum í skipulagi Vogabyggðar sé að skapa jákvæðar forsendur fyrir áhugaverða og vistvæna byggð. Brýnt var fyrir hönnuðum, lóðarhöfum og öðrum að kynna sér vel alla skilmála sem gilda fyrir hönnun bygginga og útirýma á viðkomandi lóð auk þess að átta sig á samhengi byggðarinnar í tengslum við framtíðarþróun nánasta umhverfis.“

Umræddir sérskilmálar séu hluti af heildarhugsun hverfisins og útfærslan hluti af heildarmynd þess frá upphafi.

Heimild: Visir.is