Vegagerðin óskar eftir tilboðum í styrkingu og klæðingu á Hringvegi (1-b5 og 1-b6) undir austanverðum Eyjafjöllum.
Framkvæmdin er á 2 vegarköflum milli Skóga og Dyrhólavegar, sem eru alls 2,6 km langir.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 995 m3
- Fyllingar og fláafleygar 1.590 m3
- Burðarlag 0/22 2.260 m3
- Tvöföld Klæðing 20.685 m2
Verklok eru 1. ágúst 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 29. mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. apríl 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.