F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Smáhýsi fyrir Velferðarsvið 2021, útboð nr. 15157
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00, 29. mars 2021.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 14. apríl 2021.
Yfirlit yfir verkið:
Smáhýsin verða reist í Skógarhlíð og Kleppsmýrarvegi í Reykjavík, tvö hús í Skógarhlíð og þrjú hús við Kleppsmýrarveg.
Húsin verða flutt tilbúin af geymslusvæði á verkstað.
Verkið fellst í jarðvinnu, forsteyptar undirstöður, smíði tæknirýma og skyggna framan við inngang, ásamt lóðarfrágangi.
Framkvæmdatími hefst þegar verkkaupi hefur formlega tekið tilboði bjóðanda, verklok eru þann 24. september.
Helstu magntölur:
Gröftur: 943 m3
Fyllingar: 384 m3
Forsteypar einingar af ýsmum gerðum.
Fullnaðarfrágangur á báðum lóðum.