F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Malbiksyfirlagnir í Reykjavik 2021 – útboð 1 – vestan Reykjanesbrautar, útboð nr. 15146.
Helstu magntölur:
Malbiksfletir 60.457 m2
Malbik 6.591 tn.
Lokaskiladagur verksins er 10. september 2021.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00 þann 30. mars 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 16. apríl 2020.