Home Fréttir Í fréttum Hornsteinn Húss íslenskunnar lagður síðasta vetrardag

Hornsteinn Húss íslenskunnar lagður síðasta vetrardag

182
0
Mynd: arnastofnun.is
Uppsteypu Húss íslenskunnar við Arngrímsgötu í Reykjavík lauk fyrir skömmu og nú er lokun hússins á lokametrunum.
Framkvæmdir við húsið sjálft hófust 30. ágúst 2019 þegar Lilja Albertsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra undirritaði verksaming við ÍSTAK um byggingu þess.

Hornsteinn verður lagður að húsinu síðasta vetrardag, 21. apríl næstkomandi en þá verða 50 ár liðin frá því að fyrstu handritin komu frá Danmörku til Íslands.

<>

Stjórnvöld lögðu fé til byggingar hússins árið 2005 en fyrsta skóflustungan var tekin árið 2013.

Grunnur var grafinn en eftir það gerðist fátt í sex ár nema hvað grunnurinn var meðal annars nýttur af nemendum í setlagafræði við Háskóla Íslands til að skoða og skrá setlög.

Grunnurinn gekk löngum undir heitinu Hola íslenskra fræða í daglegu tali. Í honum var kjörlendi gróðurs en á fjórða tug háplantna skaut rótum í rökum jarðveginum, þar á meðal aspir og víðir.

Síðla árs 2013 knúði Helgi Hjörvar, þáverandi þingmaður Samfylkingarinnar, Illuga Gunnarsson sem þá var menntamálaráðherra svara um kostnað við að fylla í grunninn og ganga frá lóðinni.

Heimild: Ruv.is