Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið
„Hrollaugsstaðir – endurbætur – íbúðir“ eins og því er lýst í meðfylgjandi útboðsgögnum.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda. Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum þessum.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Fyrirhugaðar eru alls herjar endurbætur á hluta félagsheimilisins á Hrollaugsstöðum í Suðursveit, Sveitarfélaginu Hornafirði, nánar til tekið á þeim hluta hússins sem upphaflega var byggður sem skóli og heimavist. Húsið er staðsett í u.þ.b. 55 km fjarlægð frá næsta þéttbýli sem er Höfn í Hornafirði. Endurbæturnar felast í að endurinnrétta þennan hluta hússins og breyta í fimm íbúðir.
Helstu verkþættir, sem eiga við þann hluta hússins sem endurbæturnar ná yfir, eru:
- Rif og förgun á utanhússklæðningu, þakklæðningu, hluta af gluggum, milligólfi úr timbri, innréttingum, gólfefnum, ljósum og lögnum, einangrun og klæðning innan á útveggjum rifin, múrbrot á hluta innveggja, ílögn gólfa og botnplötu að hluta.
- Allt innandyra verður svo endurinnréttað á þessum hluta hússins samkvæmt viðeigandi teikningum/verklýsingum hönnuða.
- Þak verður endur einangrað og sett ný þakklæðning á húsið.
- Ný utanhússklæðning verður sett á húsið en gert er ráð fyrir að undirkerfi og einangrun haldi sér.
- Skipt verður um alla glugga og hurðir og einnig verður bætt við gluggum og hurðum á húsið og nýjar svalir verða settar utan á húsið.
- Allir útveggir endur einangraðir að innan með plasteinangrun og múraðir.
Vettvangskönnun á verkstað
Vettvangskönnun verður haldinn með tilboðsgjöfum eftir óskum. Nákvæm tímasetning og fyrirkomulag vettvangskönnunar verður skv. samkomulagi aðila. Bjóðendur eru hvattir til að mæta í vettvangskönnun og kynna sér aðstæður á verkstað.
Útboðsgögn
Útboðsgögn bera nafnið: „Hrollaugsstaðir – endurbætur – íbúðir“ og sundurliðast eftirfarandi:
- IST 30
- Útboðslýsing gerð af ASK Arkitektum ehf. Verkhof ehf. og tæknideild sveitarfélagsins
- Hornafjarðar.
- Teikningar og verklýsingar arkitekta, gerðar af ASK arkitektum ehf.
- Teikningar og verklýsingar, gerðar af Verkhof ehf.
- Teikningar og verklýsingar, gerðar af Vattará ehf.
- Tilboðsblað ásamt tilboðsskrá
- Form verksamnings
- Form verktryggingar
Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds frá og með fimmtudeginum 25. febrúar 2020, eftir klukkan 13:00 með því að senda tölvupóst á bjorni@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Hrollaugsstaðir –Endurbætur – íbúðir“ Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Hrollaugsstaðir útboðsgögn“.
Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði merktu „Hrollaugsstaðir – Endurbætur – íbúðir. Tilboð“ eigi síðar en fimmtudaginn 25. mars 2021 kl. 14:00. er þau verða opnuð samtímis í viðurvist þeirra bjóðenda er þess óska.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.
Nánari upplýsingar veita:
Björn Imsland, bjorni@hornafjordur.is sími 470-8014 eða 894-8413.
Brynja Dögg Ingólfsdóttir brynja@hornafjordur.is sími 470-8003.