Home Fréttir Í fréttum 03.03.2021 Kópavogsbær Lausar skólastofur – Hönnun, smíði, uppsetning og fullnaðarfrágangur

03.03.2021 Kópavogsbær Lausar skólastofur – Hönnun, smíði, uppsetning og fullnaðarfrágangur

156
0
Mynd: Mbl.is

Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í tvær lausar skólastofur auk tengibyggingu. Um er að ræða opið alútboð.

<>

Verkið fellst í hönnun, smíði, flutningi, uppsetningu og fullnaðarfrágangi á tveimur lausum skólastofum með tengibyggingu við Kársnesskóla.

Nettóstærð hverrar kennslustofu skal vera 85,5 m2, breidd tengibygginga milli stofa á bilinu 2,8-3m og nettóstærð þeirra að lágmarki 14 m2.

Verkinu skal að fullu lokið 10. ágúst 2021.

Útboðsgögn verð afhent rafrænt og skulu þeir, sem óska eftir útboðsgögnum fyrir verk þetta, senda tölvupóst á netfangið utbod@kopavogur.is, frá og með þriðjudeginum 16. febrúar nk.

Í tölvupósti skal koma fram nafn tengiliðs vegna útboðsins, símanúmer, netfang og nafn fyrirtækis.

Eiginlegur opnunarfundur með bjóðendum verðu ekki haldinn, tilboðum ásamt nauðsynlegum gögnum skal skila rafrænt (tölvupóstur) á póstfangið utbod@kopavogur.is fyrir  kl. 11:00 miðvikudaginn 3. mars  2021.

Niðurstöður opnunar verða sendar þeim aðilum sem skila inn tilboðum.