Home Fréttir Í fréttum Þverárfjallsvegur (73) í Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá. Matsskýrsla

Þverárfjallsvegur (73) í Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá. Matsskýrsla

212
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin hefur lagt fram matsskýrslu vegna vega- og brúargerðar í sveitarfélögunum Blönduósbæ og Skagabyggð í Austur-Húnavatnssýslu.

<>

Til stendur að byggja nýjan 8,5 km langan stofnveg frá Hringvegi austan Blönduóss að Þverárfjallsvegi (744), skammt sunnan við brú á Laxá.

Frá nýjum vegi verður byggður um 3,3 km langur vegur til norðurs, með nýrri 109 m langri brú yfir Laxá, og inn á núverandi Skagastrandarveg norðan við Höskuldsstaði í Skagabyggð. Heildarlengd nýrra vega- og brúar er um 11,8 km.

Áætluð efnisþörf vegna framkvæmdarinnar er um 310-350 þús. m3, háð vali á veglínu. Efni verður fengið úr skeringum og námum á svæðinu.

Að framkvæmdum loknum verður nýi 8,5 km langi stofnvegurinn í Refasveit hluti Þverárfjallsvegar sem fær nýtt vegnúmer, þ.e. Þverárfjallsvegur (73). Nýi 3,3 km langi vegurinn, með nýrri brú á Laxá, verður að framkvæmdum loknum fyrsti kafli Skagastrandarvegar (74).

Núverandi Skagastrandarvegur í Refasveit verður gerður að tengivegi og fær nafnið Refasveitarvegur með vegnúmerið 740. Neðribyggðarvegur (741) verður aflagður.

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á milli þéttbýlisstaða á Norðurlandi vestra, auka umferðaröryggi vegfarenda og íbúa og tryggja greiðar samgöngur á svæðinu í sátt við umhverfið.

Framkvæmdaaðili er Vegagerðin og hefur Norðursvæði Vegagerðarinnar umsjón með fyrirhugaðri framkvæmd.

Sjá matsskýrsluna og önnur gögn á heimasíðunni.

Heimild: Vegagerðin.is