Home Fréttir Í fréttum Vegagerð hafin milli Mjólkár og Dynjanda

Vegagerð hafin milli Mjólkár og Dynjanda

185
0
Þegar mótar fyrir nýju vegstæði Vestfjarðavegar um Mjólkárhlíð í Arnarfrði. Mynd: STEINAR JÓNASSON

Vinna er hafin við lagningu nýs vegarkafla Vestfjarðavegar í botni Arnarfjarðar, milli Mjólkárvirkjunar og fossins Dynjanda. Kaflinn er 4,3 kílómetra langur fyrir Meðalnes, milli Dynjandisvogar og Borgarfjarðar. Suðurverk annast stóran hluta verksins sem undirverktaki Íslenskra aðalverktaka.

<>
Nýja vegstæðið séð frá Snjalleyri. Ofar í Mjólkárhlíð má sjá núverandi veg.
STEINAR JÓNASSON

Þetta er hluti af fyrsta áfanga í endurbyggingu vegarins um Dynjandisheiði. Vegagerðin samdi við ÍAV um verkið, alls tíu kílómetra, sem skiptast í tvo kafla.

Verktakarnir hófust handa í haust við fyrri kaflann, 5,7 kílómetra, sem nær úr Penningsdal ofan Flókalundar og langleiðina að gatnamótum Bíldudalsvegar á heiðinni. Vinna við verkhlutann Arnarfjarðarmegin hófst svo um miðjan janúar.

Vinnubúðir Suðurverks við Mjólkárvirkjun. Þær voru reistar vegna Dýrafjarðarganga og nýtast núna við vegagerðina.
STEINAR JÓNASSON

„Suðurverk mun sjá um stóran hluta vinnunnar þar sem undirverktaki og þeir búa í eigin vinnubúðum við Mjólkárvirkjun, þeim sömu og hýstu mannskap við gerð Dýrafjarðarganga. Það eru um 5-10 starfsmenn á þeirra vegum núna,“ segir Pétur Hemmingsen, verkefnisstjóri ÍAV á Dynjandisheiði.

Horft inn Arnarfjörð í átt að Mjólkárvirkjun.
STEINAR JÓNASSON

„Vinnan hefur gengið þokkalega miðað við árstíma. Þetta hefur verið nokkuð mildur vetur hingað til samanborið við síðasta vetur og hefur ekki truflað vinnuna mikið en það hefur þó verið að færast meiri þungi í vetrarveðrið síðustu daga,“ segir Pétur, spurður um hvernig vinnan hafi gengið og hvort veður hafi truflað.

Horft út Arnarfjörð í átt til Mosdals. Efst til vinstri má sjá hvar núverandi vegur liggur hátt uppi í hlíðinni fyrir Meðalnes.
STEINAR JÓNASSON

Að sögn Steinars Jónassonar, stöðvarstjóra í Mjólkárvirkjun, sem tók meðfylgjandi myndir í morgun, voru Suðurverksmenn þá að fara í langt helgarfrí og búnir að gera hlé á vinnunni. Þeir hófu verkið í Mjólkárhlíð vestan við virkjunina en þar verður vegurinn færður úr hlíðinni og niður undir fjöruna.

Kortið sýnir verkhlutana tvo milli Arnarfjarðar og Vatnsfjarðar.
VEGAGERÐIN

Samkvæmt útboðslýsingu skal útlögn efra lags klæðingar lokið 31. ágúst 2021. Verkinu skal svo að fullu lokið 30. september 2021, eftir átta mánuði. Þar með verður komið bundið slitlag milli Ísafjarðarbæjar og Dynjanda, fyrir utan síðasta kílómetrann að fossinum.

Heimild: Visir.is