F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:
Langholtsskóli – Lauganesskóli- Kennslustofur – Alútboð nr. 15023
Reykjavíkurborg býður út í alútboði smíði og hönnun á þremur færanlegum kennslustofum ásamt tengigöngum.
Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri á stálbitum. Hverja húseiningu á að vera hægt að flytja í heilu lagi og setja niður á notkunarstað.
Væntanlegur verktaki mun fullhanna kennslustofur og afhenda stofurnar fullbúnar á skólalóðir í Reykjavík. Nánari lýsingu og útskýringar er að finna í útboðsgögnum á vef Reykjavíkurborgar.
Stofurnar skal smíða á vinnusvæði væntanlegs verktaka og fluttar er smíði er lokið.
Stærðir: Við Langholtsskóla 1 stk. 80,2m² auk tengibyggingar 2,0m² og við Lauganesskóla 2 stk. 80,2m² x 2 = 160,4m² ásamt tengibyggingum 2 stk. 12,0m² = 24,0m².
Heildarstærð 266,6m²
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00 þann 15. desember 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 15. janúar 2021.