Home Fréttir Í fréttum Ákærður fyrir að stefna lífi starfsmanna í hættu með húsnæði

Ákærður fyrir að stefna lífi starfsmanna í hættu með húsnæði

227
0
Mynd: VÍSIR/VILHELM

Eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob ehf. hefur verið ákærður fyrir hættubrot og brot gegn lögum um brunavarnir með því að hafa látið starfsmenn leigunnar búa í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík án tilskilinna leyfa og fullnægjandi brunavarna.

<>

Hann er sakaður um að hafa stofnað lífi og heilsu starfsmannanna í háska í ábataskyni.

Í ákæru héraðssaksóknara á hendur manninum, sem er íslenskur karlmaður á sextugsaldri búsettur í Noregi, kemur fram að hann hafi látið útbúa búseturými fyrir starfsmenn á vegum 2findjob í iðnaðarhúsnæði að Smiðshöfða 7 í Reykjavík í lok árs 2017 og byrjun 2018.

Það gerði hann án tilskilinna leyfa og án þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir varðandi brunavarnir sem hafi verið alls ófullnægjandi. Bráð íkveikjuhætta var talin í húsinu.

Þegar slökkviliðsstjórinn í Reykjavík skoðaði eldvarnir í húsinu að beiðni lögreglu í febrúar árið 2018 kom í ljós að engin brunahólf voru í húsnæðinu til að takmarka útbreiðslu elds og reykjar, flóttaleiðir voru ófullnægjandi, innveggir og gistirými voru úr auðbrennanlegu efni, ástand raflagna var óásættanlegt og skapaði eldhættu auk þess sem starfsemi sem fór fram í húsnæðinu fól í sér íkveikjuhættu.

Þannig var eigandi starfsmannaleigunnar, sem var einnig eigandi fyrirtækisins sem leigði húsnæðið, talinn hafa stofnað heilsu og lífi um 24 starfsmanna leigunnar sem voru búsettir í húsnæðinu um þriggja mánaða skeið í augljósan háska „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“.

Hafa lokað iðnaðarhúsnæði sem er notað til búsetu

Ólöglegt er að hafa búsetu í iðnaðarhúsnæði og hefur slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu lokað slíku húsnæði þar sem brunavörnum var áfátt undanfarin ár. Í mörgum tilfellum eru það erlendir farandverkamenn sem hafast við í húsnæði af þessu tagi.

Það er ekki aðeins í iðnaðarhúsnæði þar sem erlendir verkamenn hafa búið við hættulegar aðstæður. Þrír Pólverjar, tvær konur og einn karlmaður, fórust í eldsvoða í húsi við Bræðraborgarstíg 1 í Reykjavík í júní í sumar. Þrettán manns voru í húsinu þegar eldurinn kviknaði en enn fleiri bjuggu þar. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sagði að alls hafi 73 einstaklingar verið skráðir með lögheimili í húsinu.

Húsið sem brann er í eigu HD Verks. Lögmaður þess neitaði því að svo margir hafi búið í húsinu og hafnaði því að fyrirtækið tengdist starfsmannaleigum í sumar.

Heimild: Visir.is