Fyrr í dag undirrituðu Sveitarfélagið Ölfusog og Hornsteinn hf. móðurfyrirtæki BM Vallár, Björgunar og Sementsverkesmiðjunnar viljayfirlýsingu sem felur í sér uppbyggingu á umfangsmikilli starfsemi Hornsteins í Þorlákshöfn.
Um er að ræða útflutningsverkefni tengd auðlindanýtingu jarðefna. Ef af því verður getur það orðið undirstaða útflutnings á 0,5 til 1 milljón tonnum af unnu efni.
Slík umsvif myndu skapa tugi starfa í sveitarfélaginu auk umsvifa við höfnina. Framleiðsla gæti hafist strax á næsta ári en áætlað er að niðurstaða um umfang framleiðslu liggi fyrir um mitt næsta ár.
Samhliða þessu hefur Horsteinn hug á að kanna möguleika á frekari starfsemi í sveitarfélaginu í takt við þá framleiðslustarfsemi sem félagið starfrækir fyrir innanlandsmarkað.
Að sögn Elliði Vignisson, bæjarstjóra í Ölfusi, hefur Covid-19 lagt ríka ábyrgð á hið opinbera þegar kemur að nýrri verðmætasköpun. „Nú þegar atvinnuleysi er í sögulegu hámarki er ljóst að við verðum fyrst og fremst að framleiða okkur út úr kreppunni. Þetta verkefni er sannarlega skref í þá átt.“
„Við hjá Sveitarfélaginu Ölfusi höfum markvisst verið að vinna að kortlagningu tækifæra og þá ekki síst þeirra sem snúa að auðlindanýtingu og vexti hafnarinnar. Sú sókn hefur að stórum hluta verið leidd af Þekkingarsetrinu „Ölfus Cluster“.
Undir þess hatti koma fyrirtæki hér í Ölfusi saman að nýtingu tækifæra, grænum lausnum og tilurð hringrásarhagkerfis. Áherslur Horsteins og dótturfyrirtækja þess falla afar vel að okkar framtíðarsýn og við fögnum því að fá þá til liðs við okkur.“
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins ehf., segir að fyrirtækið og dótturfélag þess hafi mikla reynslu af auðlindanýtingu og uppbyggingu verkefna sem þessa. „Það er sannfæring okkar að þá reynslu og þekkingu megi nú nýta til frekari sóknar í samstarfi við Sveitarfélagið Ölfus og íbúa þess.
Við þekkjum vel til Sveitarfélagsins Ölfus og sjáum tækifæri til frekari uppbyggingar þar. Ölfus er að okkar mati eitt helsta vaxtarsvæði á landinu með skýra sýn á auðlindanýtingu og innviðauppbyggingu svo sem hvað varðar stækkun hafnarinnar.
Samstarf innan innan Þekkingarsetursins „Ölfus Cluster“ auðveldar mjög framgang þessa verkafnis og við fögnum samvinnu á þeim forsendum.“
Heimild: Hafnarfrettir.is