Home Fréttir Í fréttum Vigtartorgið í Vestmannaeyjum endurhannað

Vigtartorgið í Vestmannaeyjum endurhannað

157
0
Nú er verið að hlaða grjótveggi sem afmarka svæðið og vinna aðra jarðvinnu eftir föngum. Ljósmynd/TMS

Í byrjun árs var kynnt í framkvæmda- og hafnarráði Vestmannaeyjabæjar endurhönnun Vigtartorgsins við smábátahöfnina.

<>

Nú eru hafnar framkvæmdir við torgið.

Fram kom í fundargerð ráðsins þá að ljóst sé að verkið sé umfangsmikið og því nauðsynlegt að áfangaskipta því.

Ráðið samþykkti að hefja framkvæmdir í samræmi við fjárhagsáætlun.

Meðal þess sem lagt var til að yrði á torginu er yfirbyggt útisvið, legubekki, fjölbreytt leiktæki, sögutorg, hengirúm, setbrekka og sölubásar.

Heildarkostnaður gæti verið um 100 milljónir

Ólafur Þór Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar segir í samtali við Eyjar.net að nú sé verið að hlaða grjótveggi sem afmarka svæðið og vinna aðra jarðvinnu eftir föngum.

Hann segir að á þessu ári hafi verið gert ráð fyrir 30 milljónum í verkið.

„Grunnhugmynd af svæðinu var útfærð af Pétri Jónssyni arkitekt frá Laufási en gert er ráð fyrir að vinna verkið á 3 árum.

Endanlegar útfærslur á leiktækjum o.s.frv. eru ennþá í vinnslu þannig að óvarlegt er að fullyrða um kostnað en heildarkostnaður gæti verið um 100 milljónir.” segir Ólafur Þór.

Hér að neðan má sjá tillöguna sem að kynnt var í byrjun árs.

Heimild: Eyjar.net