Home Fréttir Í fréttum 17.11.2020 Reykjanesbær – Gervigrasvöllur – Flóðlýsing

17.11.2020 Reykjanesbær – Gervigrasvöllur – Flóðlýsing

419
0
Reykjanesbær

Reykjanesbær -Umhverfisvið óskar hér með tilboðum í flóðlýsingu á nýjan gervigrasvöll í Reykjanesbæ

<>

Verkið er fólgið í útvegun og uppsetningu á fjórum 27 m háum ljósamöstrum með ljósum, festiplötum og undirstöðum fyrir möstur,  við  nýjan æfingavöll vestan Reykjaneshallar í Reykjanesbæ.

Verktaki skal hanna möstur, lýsingu og undirstöður og skila inn útreikningum sem sýna að kröfur KSI og FIFA séu uppfylltar fyrir keppnisvelli utanhúss.

Annar verktaki á vegum verkkaupa sér um jarðvinnu undir undirstöður og skilar klárum fyrir uppslátt og steypu þeirra. Lokið er við að leggja ídráttarrör að stæði undirstaða ljósamastra.

Útboðsgögn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á innkaupastjori@reykjanesbaer.is frá og með 22.október. Vinsamlega tilgreinið nafn fyrirtækis, umsjónaraðila, tölvupóstfang og símanúmer hans.

Yfirlit um helstu atriði útboðs

  • Auglýsing útboðs 22. október 2020.
  • Fyrirspurnartíma lýkur 6. nóvember 2020.
  • Svarfrestur rennur út 12. nóvember 2020.
  • Tilboðsfrestur 17. nóvember 2020, kl: 10:59.
  • Opnun tilboða 17. nóvember 2020, kl: 11:00.
  • Mat tilboða 17. nóvember – 18. nóvember 2020.
  • Tilkynning um val tilboðs 24. nóvember 2020.
  • Undirritun verksamnings Í viku 48.
  • Upphaf samningstíma Við töku tilboðs.
  • Lok framkvæmdatíma 31. maí 2021.
  • Verktrygging 10% af tilboðsupphæð

Vakin er athygli á því að þetta er rafrænt útboð og því verður ekki um formlegan opnunarfund að ræða. Á opnunardegi verður öllum sem senda inn tilboð opnunarfundargerð þar sem fram kemur:  tilboðsgjafar, upphæð hver tilboðs og kostnaðraáætlun.

Senda skal útfyllt tilboð samkvæmt útboðsgögnum á netfangið: innkaupastjori@reykjnesbaer.is fyrir kl 10:59, 17. nóvember 2020.