Home Fréttir Í fréttum 19.11.2020 Vetrarþjónusta á götum og stígum á Akranesi, 2020 – 2025

19.11.2020 Vetrarþjónusta á götum og stígum á Akranesi, 2020 – 2025

176
0
Mynd: Akranes.is

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboði í vetrarþjónustu á götum og stígum á Akranesi yfir 5 vetur, árin 2020 – 2025.

<>

Útboðið er í tveimur hlutum. Hluti 1: Vetrarþjónusta gatna og bílastæði stofnana, sem felst í snjóhreinsun gatna og bílastæða skóla. Hluti 2: Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiða, sem felst í snjóhreinsun og saltdreifingu á göngu- og hjólaleiðum utan einkalóða. Heimilt er að bjóða í annan hlutann eða báða, og verður gerður samningur um hvorn verkhluta fyrir sig.

Árleg þjónusta er áætluð:

  • Götur 580 klst
  • Stígar 400 klst

Útboðsgögn eru einungis afhent á stafrænu formi, með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmeri tengiliðs.

Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, fimmtudaginn 19. nóvember 2020 kl. 11:00.