Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkefnið: „Endurbygging útveggja Vesturhúss“.
Verkið einskorðast að langmestu leyti við að skipta út útveggjum Vesturhúss og aðgerðum tengdum því.
Ekki stendur til, sem hluti af þessu verki, að gera breytingar á öðrum hlutum höfuðstöðva OR eða kerfa þess umfram það sem þarf til að skilgreina nýja útveggi og þá hluta húskerfa sem þeim tengjast eins og fram kemur í verklýsingu þessari.
Leiðarstef verkefnisins er hagkvæmni, viðurkenndar og reyndar lausnir, hógvært og lágstemmt.
Útboðsgögn hafa verið gerð aðgengileg, án endurgjalds, á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.
Útboðsgögn verða afhent þann: 05.10.2020 kl. 19:00
Kynningarfundur verður haldinn en vegna ástandsins í samfélaginu verður tímasetning og fyrirkomulag hans kynnt nánar síðar.
Skilafrestur og opnun tilboða er 12. janúar 2021, kl. 11:00.
Tilboð verða opnuð rafrænt á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.