Home Fréttir Í fréttum 20.10.2020 Fjallabyggð. Tengibygging við sundlaug og íþróttahús á Siglufirði

20.10.2020 Fjallabyggð. Tengibygging við sundlaug og íþróttahús á Siglufirði

176
0

Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í að byggja anddyri, búningsklefa og tilheyrandi tengibyggingu við núverandi sundlaugarbyggingu og íþróttahús á Siglufirði, samtals 292,3 má tveimur hæðum. Innifalið í verkinu er rif á tengigangi og breytingar á núverandi húsnæði samtals um 110 m² skv. teikningum AVH dags. í júlí 2020.

<>

Verktími er frá 1. nóv. 2020 til 28.febrúar 2022.

Helstu magntölur eru:

Gröftur                                     1.200m3
            Steypumót                                1.400m²
Steypustyrktarstál                     10.000 kg
Steinsteypa                                190m3
            Kerfisloft                                    310m²
Málun                                         600m²
Flísalögn samtals                         810m²

Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með 29. september nk.

Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið avh@avh.is  fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn 20. október og verða tilboðin opnuð kl. 13:30 sama dag í ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun tilboða á fjarfundi óski þeir þess.