Home Fréttir Í fréttum 08.10.2020 Nýr grunnskóli í Björkurstykki – Jarðvinna

08.10.2020 Nýr grunnskóli í Björkurstykki – Jarðvinna

495
0

Fasteignafélag Árborgar óskar eftir tilboðum í verkið:

<>

Nýr grunnskóli í Björkurstykki – Jarðvinna

Verkið felst í jarðvinnu fyrir undirstöður skólabyggingar í Björkurstykki á Selfossi í nýju hverfi sem er í uppbyggingu sunnan við núverandi byggð í Selfossi.

Grafa skal fyrir undirstöðum niður á burðarhæfan botn, losa klöpp/hraun þar sem þarf og fylla undir undirstöður. Þá skal grafa lagnaskurð að tengipunktum við götu og ganga frá lögnum í honum.

Verklok eru þann 15.01.2021.

Helstu magntölur eru eftirfarandi:

  • Uppgröftur 200m3
  • Losun á klöpp 500m3
  • Fyllingar undir mannvirki 900m3
  • Fyllingar undir plan/vinnusvæði 100m2
  • Girðingar 520m

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með þriðjudeginum  15. september 2020.  Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Höllu Katrínu Svölu- og Arnardóttur hjá EFLU með tölvupósti í netfangið halla.katrin@efla.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang bjóðanda og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.

Tilboðum skal skila til EFLU verkfræðistofu, Austurvegi 1-5, 800 Selfoss fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 8. október 2020 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar