Home Fréttir Í fréttum Fyrstu íbúarnir fluttir inn í nýjan búsetukjarna að Arnarhrauni í Hafnafirði

Fyrstu íbúarnir fluttir inn í nýjan búsetukjarna að Arnarhrauni í Hafnafirði

287
0
Mynd: Hafnarfjordur.is

Tveir fyrstu íbúarnir í nýjum búsetukjarna að Arnarhrauni 50 í Hafnarfirði eru fluttir inn.

<>

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, formaður fjölskylduráðs og sviðstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs litu í heimsókn þegar flutningar stóðu yfir og óskuðu nýjum íbúum innilega til hamingju með falleg og ný heimili.

Báðir íbúarnir eru að flytja í fyrsta skipti að heiman og voru að vonum yfir sig ánægðir.

Frábær staðsetning og stutt í alla þjónustu

Arnarhraun 50 er sex sérbýla íbúðakjarni sem samtals telur um 351 fermetra með sameiginlegu rými fyrir starfsfólk og íbúa.

Gengið var til samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf. um bygginguna í árslok 2018 og fyrsta skóflustungan tekin í mars 2019. Nú 1,5 ári síðar eru íbúðirnar tilbúnar og verið að leggja lokahönd á frágang utanhúss.

Tveir íbúar flytja inn um næstu mánaðarmót og um áramót flytja síðustu tveir.

„Langþráðum áfanga er náð. Þetta er gleðistund og frábært að fá tækifæri til að fagna með nýjum íbúum“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Íbúðakjarninn er staðsettur á rótgrónum og fallegum stað í hjarta Hafnarfjarðar við Hamarskotslæk. Nálægð við náttúruperlur og græn svæði er því mikil og stutt í alla þjónustu.

„Fjölgun búsetukjarna er liður í áætlun Hafnarfjarðarbæjar um fjölgun heimila fyrir fatlað fólk og næsta skref er að klára uppbyggingu á nýjum búsetukjarna að Öldugötu 45 og fagna með þeim sem þangað flytja.

Gert er ráð fyrir að íbúðirnar þar afhendist fullbúnar vorið 2021“ segir Rósa.

Heimild: Hafnarfjarðabær