Framkvæmdir eru hafnar við gerð hringtorgs á hættulegum gatnamótum á hringveginum á Suðurlandi.
Um er að ræða gatnamót Hringvegar (1), Landvegar (26) og Ásvegar (275).
Unnt var að fara í þetta verk eftir að viðbótarfjárveitingar fengust til vegaframkvæmda sl. vor vegna kórónuveirunnar, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Á þessum gatnamótum hafa orðið slys og óhöpp í gegnum árin.
Árið 2002 varð þarna mjög alvarlegt slys þegar þrjár konur létust þegar bifreið þeirra lenti í árekstri við rútu.
Í skýrslu Línuhönnunar frá desember 1999 um lagfæringu á slysastað sem Rögnvaldur Jónsson, forstöðumaður hjá Vegagerðinni, lét vinna stendur:
„Verslun er staðsett á horni Suðurlandsvegar og Landvegar og er mjög nálægt vegamótunum. Á Suðurlandsvegi að vestan er komið upp brekku, en flatt er að austan.
Verslunin er alveg við veginn, sem skyggir mikið á útsýni til austurs fyrir umferð, sem kemur eftir Landvegi.“
Heimild: Mbl.is