
Guðmundur Valur Guðmundsson, forstöðumaður Vegagerðarinnar, segir að framkvæmdir við breikkun einbreiðra brúa á Suðausturlandi munu kosta á annan milljarð.
Framkvæmdirnar sem um ræðir eru á fjórum stöðum og eru verklok fyrirhuguð í vor á næsta ári.
Brýrnar sem um ræðir liggja yfir Kvíá, Brunná, Steinavötn og Fellsvötn.
Framkvæmdir hófust í fyrrahaust og voru verkin við Steinavötn og Fellsvötn boðin út.
Ístak varð hlutskarpast í útboðinu og fer með framkvæmdirnar. Engin bauð í framkvæmdirnar við Brunná og Kvíá og kannaði Vegagerðin áhuga „líklegra fyrirtækja,“ líkt og Guðmundur Valur orðaði það í samtali við mbl.is.
Úr varð að Ístak fer einnig með framkvæmdir við Brunná og Kvíá.
Líkt og áður sagði eru verklok fyrirhuguð snemma á næsta ári og mun verkið kosta á annan milljarð samkvæmt forstöðumanni Vegagerðarinnar.
Heimild: Mbl.is