Verkís hf., fyrir hönd Hveragerðisbæjar, óskar eftir tilboðum í 2. áfanga endurbóta við Sundlaugina í Laugaskarði, Hveragerði.
Um er að ræða heildarendurnýjun búningsklefa með endurbættri veggjaskipan, nýjum yfirborðsefnum, lagna-, loftræsi- og rafkerfum.
Nokkrar magntölur:
– Steinsteypa: 30 m³
– Milliveggir: 200 m²
– Flísalögn: 320 m²
– Málun: 730 m²
Verklok eru 1. apríl 2021.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt. Áhugasamir sendi tölvupóst á verkis.selfoss@verkis.is með nafni, heimilisfangi og síma.
Tilboðum skal skila á Bæjarskrifstofur Hveragerðisbæjar, Breiðumörk 20, 810 Hveragerði fyrir kl.14.00, 2. september 2020, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þess óska.