Home Fréttir Í fréttum 20.08.2020 Langholt – Holtaborg, endurgerð lóðar 2020

20.08.2020 Langholt – Holtaborg, endurgerð lóðar 2020

286
0
Holtaborg. Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Langholt – Holtaborg, endurgerð lóðar 2020, útboð nr. 14963

Verkið er endurgerð lóðar leikskólans Langholts / Holtaborgar við Sólheima 21, 104 Reykjavík.

Um er að ræðir alla lóðina sem er sunnan við leikskólann um það bil 1.900 m².  Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði.

Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt.

Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Verkkaupi leggur til leiktæki og verða þau sett upp af aðila á vegum söluaðila viðkomandi leiktækja. Uppsetning leiktækja verða unnin samhliða verkþáttum jarðvinnuverktaka.

Verktaki á að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 1. nóvember 2020 vegna vinnu við leiktæki. Vinna á vegum söluaðila þessa verkþátta á að vera á tímabilinu 1. nóvember til 20. nóvember 2020.

Framkvæmdum skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. desember 2020.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00, þann 4. ágúst 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is 

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30 þann 20. ágúst 2020.