Home Fréttir Í fréttum 10.08.2020 Klambratún 2020 – Áfangi 1

10.08.2020 Klambratún 2020 – Áfangi 1

504
0
Mynd: Skjáskot af Mbl.is

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Klambratún 2020 – Áfangi 1, útboð nr. 14911

Um er að ræða lagfæringu göngustíga á Klambratúni, gerð hjólastólaramps frá Kjarvalsstöðum niður að torgi og yfirborðsfrágangs vestan megin Kjarvalsstaða.

Verkið felst í gerð stíga og undirvinnu og yfirborðsfrágangi ásamt lagningu snjóbræðslu, gerð stálhandriðs og uppsetningu lýsingar og meðfylgjandi lagna.

Helstu magntölur eru:

  • Uppúrtekt, efni á tipp : 1350 m3
  • Grúsarfylling : 1200 m3
  • Upptaka á yfirborðsefnum : 1350 m2
  • Hellulögn : 1180 m2
  • Malbik : 1225 m2
  • Snjóbræðslulagnir : 2160 m
  • Stálhandrið, corten stál : 92m
  • Jarðvinna vegna raflagna : 320 m
  • Ljósastólpar : 12 stk.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00, þann 27. júlí 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is 

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 10. ágúst 2020.