Landnset óskar eftir tilboðum í jarðvinnu, byggingu og fullnaðarfrágangi á tveimur nýjum 220 kV tengivirkishúsum. Annað húsið er staðsett á Hólasandi en hitt er staðsett á Rangárvöllum.
Eftirfarandi eru helstu verkþættir verksins á hvorum stað:
- Afmarka byggingarsvæðið.
- Grafa fyrir fyllingu undir hús, forsteyptum undirstöðum, spennaþró og bílastæði.
- Grafa fyrir lögnum.
- Fylla í grunn, inn í sökkla, í kringum lagnir og í kringum hús og þjappa.
- Jarðvinna við aðkomuveg og frágangur bílastæða á Rangárvöllum.
- Lagning plans í kringum tengivirkið á Hólasandi.
- Reisa tengivirki á Hólasandi með forsteyptum einingum, ásamt því að steypa á staðnum botnplötu, sökkulfætur, ásteypulag holplötueininga ofl. Stálvirki á þaki fyrir jarðvíra.
- Staðsteypa undirstöður og spennaþrær og byggja fjórar spenna- og spólubyggingar á Rangárvöllum úr steypu og stáli.
- Steypa strengjastokk sem tengir saman tengivirki og spennabyggingar á Rangárvöllum.
- Leggja jarðskauts- og spennujöfnunarkerfi í steypu og jörð.
- Leggja frárennslislagnir við hús og frá húsum.
- Leggja vatns- og raflagnir og setja upp lýsingu og annan búnað, þar með taldar frárennslislagnir, öryggiskerfi, fjarskiptakerfi og lyftikrana, og ganga frá tækjum og rafkerfum hússins.
- Ganga frá húsi að utan og innan.
- Ganga frá umhverfi húss.
- Vinna það annað sem sýnt er á teikningum og lýst í verklýsingu eða kann að verða krafist á framkvæmdatímanum.
Nánari lýsingu á verkinu er að finna í útboðsgögnum sem eru birt á útboðsvef Landsnets.