Home Fréttir Í fréttum 14.07.2020 Hamarsvegur (308), Villingaholtsvegur – Skálarimavegur

14.07.2020 Hamarsvegur (308), Villingaholtsvegur – Skálarimavegur

217
0
Félagslundur. Mynd: Flóahreppur.is

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í útakstur styrktarlags, burðarlags og útlögn klæðingar á Hamarsveg (nr. 308-01) frá Villingaholtsvegi að Skálarimavegi.

<>

Helstu magntölur eru:

– Styrktarlag 0/90                                            650  m3

– Burðarlag 0/22                                              1.365  m3

– Tvöföld klæðing                                            11.125  m2

Verklok eru 15. september 2020.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 29. júní 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. júlí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.