Home Fréttir Í fréttum Vinna hafin við bráðabirgðabrú yfir Jökuslá á Sólheimasandi

Vinna hafin við bráðabirgðabrú yfir Jökuslá á Sólheimasandi

233
0
Verið er að bora niður staura undir bráðabirgðabrúna. sunnlenska.is/Sigurður Hjálmarsson

Framkvæmdir eru hafnar við gerð bráðabirgðabrúar yfir Jökulsá á Sólheimasandi en verið er að bora fyrir staurum undir brúna.

<>

Brúin er ein af þeim einbreiðu brúm á hringveginum sem verða tvöfaldaðar á næstunni.

Verið er að verkhanna nýju brúna og er áætlað að bjóða brúargerðina út í lok júní.

Ný, tvöföld brú, yfir Jökulsá á Sólheimasandi á að vera tilbúin á næsta ári.

Það er brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal sem sér um byggingu bráðabirgðabrúarinnar.

Heimild: Sunnlenska.is