Home Fréttir Í fréttum Ráðherrar skála fyrir Hafró í Hafnarfirði

Ráðherrar skála fyrir Hafró í Hafnarfirði

333
0
Kristján Loftsson, Jón Rúnar Halldórsson, Bjarni Benediktsson og Kristján Arason

Hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, vígði rétt fyrir helgi nýjar höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði.

<>

Forsetinn mætti á skipi til Hafnarfjarðar en hann tók sér far með skipalest sem fór í sérstaka vígslusiglingu af þessu tilefni frá Reykjavík til Hafnarfjarðar.

Í skipinu voru auk forseta Ísland, starfsfólk Hafró,  sjávarútvegsráðherrann Kristján Þór Júlíusson, Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins, og Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar.

Í fréttatilkynningu um málið segir að tilgangurinn með vígslusiglingunni hafi verið meðal annars að hnykkja á mikilvægi rannsóknarskipanna en útgerð þeirra er einn af meginþáttunum í starfi Hafrannsóknastofnunar.

Guðni fékk á leiðinni kynningu á tækjum og tólum um borð og ræddi við áhafnarmeðlimi. Þá nýtti forsetinn tækifærið, um miðja vegu siglingarinnar, til að virða fyrir sér bústað sinn á Bessastöðum á Álftanesi utan af sjó.

Bað hann Kristján H. Kristinsson, yfirstýrimann á Árna Friðrikssyni, um að lána sér kíki til verksins, sem var auðsótt mál.

Forsetinn klippti á fánaborða á landganginum við Háabakka

Eftir að skipin lögðust að nýjum hafnarbakka stofnunarinnar, Háabakka í Hafnarfjarðarhöfn, klippti forsetinn á fánaborða sem strengdur var fyrir landganginn og gekk svo ásamt starfsfólki Hafró að nýju höfuðstöðvunum.

Forsetinn, sjávarútvegsráðherra, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og forstjóri Hafrannsóknarstofnunar fluttu því næst stutt ávörp og þess á milli spilaði Lúðrasveit Hafnarfjarðar og einnig söng karlakórinn Þrestir nokkur lög.

Fjöldi gesta hlýddi á en á meðal þeirra voru Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Einnig mátti sjá marga þingmenn, bæjarfulltrúa, fyrrum stjórnmálamenn og forystufólk úr sjávarútvegi og atvinnulífinu.

Eftir að Jón Rúnar Halldórsson, framkvæmdastjóri Fornubúða, fasteignafélagsins sem stóð að byggingu höfuðstöðvanna, hafði afhent Sigurði H. Guðjónssyni forstjóra Hafró lyklana að nýju höfuðstöðvunum, bauðst gestum að skoða húsnæðið og njóta veitinga undir spili lúðrasveitarinnar.

Höfðu verið í Sjávarútvegshúsinu sl. 55 ár
Eftir flutningana er starfsemi Hafrannsóknastofnunar á höfuðborgarsvæðinu loks komin á einn stað en áður voru höfuðstöðvar stofnunarinnar í Sjávarútvegshúsinu að Skúlagötu 4 og geymslur og skemmur við Grandagarð. Þess má geta að Hafrannsóknarstofnun hefur haft sitt aðsetur í Sjávarútvegshúsinu allt frá stofnun árið 1965.

Stærsta timburhús landsins
Stefna Hafró er að vera eins umhverfisvæn stofnun og mögulegt er og því var ákveðið að byggja nýja húsið úr timbri. Notast var við svokallaðar krosslímdar tréeiningar sem voru fluttar inn frá Austurríki. Húsið er 4.100 fermetrar að stærð og fimm hæða og þar með stærsta timburhús landsins.
Mötuneyti og fundarsalir eru á jarðhæðinni og rannsóknarstofur á þeirri annarri. Þrjár efstu hæðirnar fara að mestu undir skrifstofur en Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna hefur einnig aðstöðu í húsinu. Þá verður geymsla, verkstæði og útgerðaraðstaða í um 1.440 m² eldri byggingu, segir enn fremur í tilkynningunni.

Í gær fékk svo almenningur svo að skoða húsið, í tengslum við hátíðarhöld vegna sjómannadagsins í Hafnarfirði.

Heimild: Dv.is