Home Fréttir Í fréttum Tvöföldun Vesturlandsvegar mun ljúka í ár

Tvöföldun Vesturlandsvegar mun ljúka í ár

298
0
Vesturlandsvegur Mynd: Mosfellingur.is

Samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Mosfellsbæjar um tvöföldun Vesturlandsvegar milli Skarhólabrautar og Langatanga í Mosfellsbæ hefur verið boðið út.

<>

Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti samning milli Mosfellsbæjar og Vegagerðarinnar um kostnaðarskiptingu og endanlega kostnaðaráætlun verksins.

Miklar samgöngubætur
Verkefnið felur í sér miklar samgöngubætur fyrir bæði íbúa Mosfellsbæjar og þá sem eru á norður eða vesturleið, með breikkun vegsvæða á kaflanum milli Skarhólabrautar og Langatanga, fjórum akreinum og aðskilnaði á akstursstefnum með vegriði.

Vegkaflinn er 1,1 km að lengd og hefur reynst flöskuháls þegar umferð er mikil en við framkvæmdina eykst jafnframt umferðaröryggi til muna.

Samhliða verða byggðir hljóðvarnarveggir, hljóðmanir, biðstöð fyrir Strætó og tilheyrandi tengingar við stígakerfi Mosfellsbæjar.

Tilboð í verkið voru opnuð þann 5. maí og var tilboð Loftorku uppá 490 milljónir lægst. Háfell bauð 609 m., Ístak 558 m. og Grjót og grafa 508 m. Áætlaður verktakakostnaður var 706 milljónir.

Flöskuhálsinn brátt úr sögunni
„Með breikkun Vesturlandsvegar í gegnum Mosfellsbæ verður brátt úr sögunni einn mesti flöskuhálsinn á þjóðvegi eitt.

Langar raðir sem myndast hafa í átt að Mosfellsbæ á álagstímum heyra þá sögunni til. Þessi framkvæmd hefur verið baráttumál okkar Mosfellinga í mörg ár.

Þetta er löngu tímabær framkvæmd og mikið fagnaðarefni,“ segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.

Samkvæmt útboðslýsingunni skal full ljúka verkinu eigi síðar en þann 1. desember 2020.

Heimild: Mosfellingur.is