Home Fréttir Í fréttum 09.06.2020 Veitur ohf. “Nýbygging Veitna á Akranesi”

09.06.2020 Veitur ohf. “Nýbygging Veitna á Akranesi”

493
0
Akranes. Mynd: Vísir/GVA

Verkkaupi óskar eftir tilboðum í verkið: “Nýbygging Veitna á Akranesi”

<>

Verkið felst í byggingu á nýrri aðstöðu fyrir Veitur á Vesturlandi að Lækjarflóa 1-3 á Akranesi.

Um er að ræða byggingu á eini hæð, alls um 960 m2. Húsið skiptist í skrifstofuhluta og verkstæðishluta. Í skrifstofuhlutanum eru skrifstofur, vinnuherbergi og fundaraðstaða auk kaffiaðstöðu fyrir starfsmenn og búningsherbergja.

Verkstæðishlutinn skiptist í lager, almennt verkstæði og er með aflokuðu tæknirými ásamt búningsherbergi og verkstæði fyrir fráveitu. Innan gengt er á milli skrifstofuhluta og verkstæðishluta. Sjá nánari upplýsingar um verkið í útboðsgögnum.

Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur frá og með 11. maí 2020.

Tilboðum skal skilað eigi síðar en kl. 14:00 þann 9. júní 2020 í gegnum útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.