Home Fréttir Í fréttum 19.05.2020 Akranesvegur(509): Faxabraut, hækkun vegar og rofvörn – Eftirlit

19.05.2020 Akranesvegur(509): Faxabraut, hækkun vegar og rofvörn – Eftirlit

141
0
Mynd: Skessuhorn.is

Vegagerðin býður hér með út umsjón og eftirlit með endurgerð á Faxabraut við Langasand ásamt grjótvörn og lagnagerð. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupstaðar og veitufyrirtækja.

<>

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 5. maí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. maí 2020.

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Föstudaginn 22. maí 2020 verður bjóðendum tilkynnt verðtilboð hæfra bjóðenda.